| Helga Sigurrós's profileHelga SigurrósPhotosBlogLists | Help |
|
February 21 Skúra, skrúbba, þrífa, bóna...Jeij..Gaman að ákveða hverju skuli henda, hvað skuli geyma, hvað eigi að fara í hvaða geymslu, hvernig sé best að verja... Pakka tíminn er semsagt byrjaður, fátt skemmtilegra. Eða ekki. Sátum buguð að ákveða hvernig væri best að halda áfram með þetta og ljúka þessu af í gærkveldi. Niðurstaðan var Seinfeld í DVD spilarann og kúr.
Það sem á að fara til London er samt komið niður. Svona 300 kg af fötum og skóm ásamt einhverju öðru smotterí sem fer á morgun. Ég hélt nú eftir 2 nærbuxum og sokkapari til að hafa til skiptanna þessar 2 vikur sem eru eftir hérna heima.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í gleðina..margar hendur og allt það! Sjálfboðaliðar óskast sérstaklega þann 4. mars í flutninga og þrif en afhending er þann 5.
Að lokum...ef þú lesandi góður eldar kvöldmat...þá eru öll boð í slíkt vel þegin af íbúum Miklu (eat and run). Comments (5)
TrackbacksThe trackback URL for this entry is: http://helgasigurros.spaces.live.com/blog/cns!DCA56B9529410F1D!1332.trak Weblogs that reference this entry
|
|
|