Helga Sigurrós's profileHelga SigurrósPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    February 27

    nýr vettvangur

    Ekkert nema flutningar. Flutningur héðan og á www.helgasigurros.blogspot.com í fæðingu. Myndir verða áfram settar hingað inn en fréttir úr Lundúnum og almennur pirringur fer á hina síðuna.
     
    Go wild.
    February 26

    Var að skoða oscar myndir. Sítt og slétt er semsagt málið. Ég sem á pantað í klipp á morgun og ætlaði í permó og stutt.
     
    Ég er að upplifa annan í þynnku eftir laugardaginn. Hversu ósanngjarnt er það?
    February 21

    Skúra, skrúbba, þrífa, bóna...

    Jeij..Gaman að ákveða hverju skuli henda, hvað skuli geyma, hvað eigi að fara í hvaða geymslu, hvernig sé best að verja... Pakka tíminn er semsagt byrjaður, fátt skemmtilegra. Eða ekki. Sátum buguð að ákveða hvernig væri best að halda áfram með þetta og ljúka þessu af í gærkveldi. Niðurstaðan var Seinfeld í DVD spilarann og kúr.
     
    Það sem á að fara til London er samt komið niður. Svona 300 kg af fötum og skóm ásamt einhverju öðru smotterí sem fer á morgun. Ég hélt nú eftir 2 nærbuxum og sokkapari til að hafa til skiptanna þessar 2 vikur sem eru eftir hérna heima.
     
    Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í gleðina..margar hendur og allt það! Sjálfboðaliðar óskast sérstaklega þann 4. mars í flutninga og þrif en afhending er þann 5.
     
    Að lokum...ef þú lesandi góður eldar kvöldmat...þá eru öll boð í slíkt vel þegin af íbúum Miklu (eat and run).
    February 14

    Fimm ára húmor

    Núna á ég ekki neitt. Ekki einu sinni skuldir...bara peninga múhahhaha. Hálf tómleg tilfinning, íbúð og PU s.s. bæði seld, en mikið er ég farin að hlakka til að fara til London. Sérlega hlakka ég til þess að allt sé tilbúið til þess að ég geti farið en það er víst slatta mikið eftir að gera fyrir það! Síðasta matarboðið á Miklu um helgina, ég held að það sé óhætt að segja að af vinkvenna hópnum hef ég verið lang duglegust að bjóða heim í boð. Ákváðum því að slá út með matarboði fyrir gamla Selja hópinn og fylgifiska svona svo að sá andi fylgi slottinu. Hlakka til.

    Einu sinni voru tvær tyggjókúlur sem fóru í bíó og í hléinu fór önnur klósettið. Þar heyrði hún snökt í fjarska. Hún gekk á hljóðið og þá sá hún hangikjöt sem var að gráta og hún spurði:

    Af hverju ertu að gráta litla hangikjöt?

    Hangikjötið svaraði: Að því að ég kann ekki að hjóla.

    February 09

    Flöskudagur?

    Cyanide and Happiness, a daily webcomic
    Þessir skemmta mér stöðugt, get ekki annað en deilt þeim með ykkur.
     
    Helgi fram undan. Mikla seld..finnst ég þurfa að fara á fullt að sjúga það síðasta úr miðbænum. Styttist í London endann og ekki orðið laust við smá titring og ALLT sem þarf að klára :S. Annars eru ég að pæla að ef ég ætla að halda áfram þessum skrifum úti þá væri kannski betra að flytja sig á stað þar sem auðveldara er að eiga gagnvirkum samskiptum þar sem lesendur virðast bara ekki getað lært á kommentakerfið að sögn, ég nenni því samt helst ekki. Rán telur sig hafa masterað það og segir þetta ekkert mál ef farið er inn á síðuna í gegnum kontakt kort á msn. Hvað af þessum blogsíðum eru bestar..þið eruð nú nokkrar hér sem flytjið reglulega ;)
    February 04

    Enn eitt ellimerkið hefur riðið yfir, og það allra sterkasta. Fyrir voru nokkur farin að gera vart við sig, "bros"hrukkur, hávaðaóþol, flókainniskórnir, Rás 2/Bylgjan..einhver fleiri en ekkert svo mörg. Það sem viðbættist er eiginlega alveg agalegt. Undafarnar 3 vikur hefur farið fram undankeppni í Evróvisjón á laugardagskvöldum..ég er semsagt alveg með á hreinu hvaða lög fara áfram, búin að hafa skoðun á því í hverjum þætti hverjir verða valdir og ofan á þetta allt saman með uppáhaldslag en mér finnst gleðin í lagi dr. Gunna flutt af Heiðu skemmtileg...svona happysong. Held með þeim. Tók ég það fram að þetta er á laugardagskvöldum?

    3 heilar vinnuvikur eftir. Hálfskrýtið. Mikla komin á markaðinn (sjá hér). Hálfskrýtið. Kisamín liggur svo hátt malandi á maganum á mér fyrir ofan tölvuna að ég heyri varla í sjónvarpinu. Skrýtnast.
    February 01

    Fyrst á röngunni...

    Mér finnst algjörlega óþolandi að það séu til einstaklingar í þessum heimi sem misnota börn. Unglingar eru líka börn. Og fullorðnir karlmenn sem sækjast eftir að sofa hjá börnum og telja sér trú um að 13 ára stelpur séu kynverur sem girnast þá, það er vægast sagt ógeðslegt. Það er óþolandi að sem uppalandi þurfi að taka þriggja til fjögurra ára gamalt barn og fræða um kynhegðun svona löngu áður en það ætti að þurfa reka sig jafn harkalega á heiminn, þar sem raunveruleg hætta er til staðar á því að einhverjir ætli að vera "góður" við klofið á barninu og setja með því ör á sál þess það sem eftir lifir ævi. Ef/þegar ég eignast börn er aldrei að vita nema að ég fái eina að Breiðarfjarðaeyjunum hans afa og setjist að þar í einangrun og uppeldi. Skál fyrir Kompás að vekja foreldra til umhugsunar um netnotkun barna og örugglega eitthvað af fullorðnu fólki (líklegast mest karlmönnum) til umhugsunar um hvar mörk í netsamskiptum liggja.
     
    Jæja, þá er ég búin að skvetta úr þessum. Að skemmtilegri hlutum. Hvernig er hægt að líka ekki við janúar? Ef maður sefur nógu lengi yfir sig er farið að birta þegar farið er á fætur og það er ennþá smá glæta þegar haldið er heim á kvöldin. Það er svo hressandi. Það sem er ekki jafn hresst er desember visareikningurinn, en það má vinna sig í gegnum hann - maður ræður ekkert við myrkrið.
     
    Í fréttum er það helst að kisamín hennar Lísu er í pössun hjá okkur. Færði okkur morgunmat í morgun - hlaðgólf af ormum - blessunin. En það er víst hugurinn sem skiptir máli. Eftir töluverðar vangaveltur í herbúðum Miklu hefur verið tekin sú ákvörðun að setja hana á sölu. Já það hreyfir sig hratt núna, en London er næsta árið og aðrar húsnæðispælingar í gangi að því loknu svo þetta er besta niðurstaðan. Sérlega í ljósi þess að þessi höfuðstóll lána gerir fátt annað en hækka á þessum síðustu og verstu. Eigum við eitthvað að ræða hvað það pirrar mig? Mikla hefur verið partur af mörgum hæðum og lægðum síðustu árin í mínu lífi og risasaga í henni, en það er líka ljóst að hún passar ekki með næstu skrefum. Frábær íbúð samt ... sem ég er svo tilbúin að kveðja :)
    January 24

    Ég eeelska harðsperrur. Harðsperrur eru mælikvarði á góða æfingu. Sérstaklega harðsperrur í rassinum, er með nóg af þeim í dag. Fór s.s. aftur á æfingu í gær eftir "jóla"pásu og hlunkaðist um. Ætla að vera dugleg í vikunni. Það er bara 5 mín labb í líkamsræktina í hverfinu okkar í London. Note to self: Ekki taka aðra "jóla"pásu í kringum flutningana.
     
    Gladdist asnalega yfir því að sambýlismaðurinn væri með magaverk í gær. Það þýðir að magaverkurinn minn undanfarna daga hefur verið smitandi óþverri, ekki kaffióþol eins og ég var farin að óttast. Bauð kaffi því aftur velkomið í líf mitt í morgun. Ég er illa innrætt.
    Cyanide and Happiness, a daily webcomic
    January 16

    Það er vægast sagt verið að drepa mig lifandi. Annar dagurinn i röð fram eftir kvöldi á fundum um algórythma og módel...með nokkrum innskotum um hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið hefur áhrif (þar kem ég inn). Fjandinn, hef ekki séð svona jöfnu glærur síðan í stærðfræði hjá Steingrími í THÍ og það var það agalegasta.
     
    Versta lykt sem ég veit er samblönduð andfýla af kaffi og tóbaki.
     
    Eitt stykki íbúð fundin í London. Eitt stykki Lín skólagjaldalán afgreitt, leið næstum yfir mig þegar ég sá framfærsluáætlunina - hvað halda þeir að ég sé? París var í einu sem öllu yndisleg. Hver veit nema að þetta verði búið fyrir myrkur á morgun og maður sjái eitthvað af Montpellier?
    January 09

    9.janúar

    Hún systir mín á afmæli í dag. Skrímslið eins og mér fannst hún einfaldlega vera fyrstu ævimánuði sína er víst orðin 22 ára, bara alveg að ná stóru systur, ekki nema 4 ár í það ;-) Þetta styttist óðum! Löngu hætt að vera skrímsli og er alveg yndisleg. Til hamingju með daginn snúllan mín
     
    PU fékk vetrardekk og 2008 miða áðan, án athugasemda sjáið til. Þvílíkur eðalkaggi, hann kemur til með að standa á bílasölu næsta daga. LÍN hætti að vera alveg jafnmiklir bjánar og mér hafa fundist þeir undanfarna daga eftir fund í hádeginu...vonandi verða þeir orðnir vinir mínir í kringum hádegi á morgun. Þannig að það er bara best að brosa við deginum sem systir mín varð 22 ára.
    January 08

    Boj ó boj. Visa heldur örugglega að það sé farið að stela af visa-kortinu mínu aftur (það sem þeir vita ekki er að ég er bara að refsa því fyrir þesssa óþægð um daginn). Útsalalala...gerði nokkuð, all nokkur, frekar mörg góð kaup um helgina.
     
    England og Frakkland næstu vikur. Held ég hætti að drekka nokkuð annað en cosmopolitan. Svo á ég morgunfíl, góðan og indælan og allt það, það er bara verst hvað ég er ókát ef ég vakna við morgunfíla. (virkar ginseng? einhver hér með það á hreinu, þar sem ég er morgunlík?)
    December 28

    Breytingar

    Gleðileg jól, nær, fjær og rafvinir. Þvílík leti sem hefur legið yfir Miklu, sumir þurftu að vísu að bregða sér í vinnu nokkra tíma á dag, þess á milli var flatmagað - þar sem ég er ekki þessir sumir hef ég eingöngu flatmagað (nema maginn ekki svo flatur ennþá) og sótt matarboð. Við erum komin með lítinn orkubolta af schnauzer kyni í vistun til okkar fram inn í nýja árið, og vííí hvað það er indælt að vera með hund á heimilinu aftur og fara í kvöldgöngur.
     
    Deginum í dag fylgja blendnar tilfinningar en ég var að tilkynna samstarfsfólki mínu að ég sé á leið í allavega ársleyfi. Hér hef ég unnið frá miðju námi þegar ég byrjaði sem fulltrúi og á þessu þrem á hálfa ári lært alveg heilan helling og þroskast ótrúlega faglega og starfa núna sem staðgengill forstöðumanns á stærsta sviði stofnunarinnar með "strákunum mínum". Mér finnst alltaf hálf kómískt þegar ég skoða þessa síðu. Það er því verið að klippa á ákveðinn naflastreng með þessu öllu saman og margir sem mér er einstaklega hlýtt til sem ég starfa með og þess vegna er ég hálf klökk barasta yfir þessu. Veimiltíta.
     
    En á móti kemur að það eru spennandi tímar fram undan. Ég hef fengið inngöngu í London School of Business and Finance þar sem ég ætla að glíma við Master in International Business, ég hef jafnframt hug að taka réttindapróf meðfram í fjármálum og stjórnun. Prógramið í kúrsum er samfellt í ár og svo er gefið ár í rannsóknarverkefni. Skólinn byrjar í mars svo LONDON BEIBÍ....ég er víst að flytja þangað. Við ætlum að vera formlega farin af landi í byrjun mars og förum út núna í byrjun ársins að leita okkur að húsnæði. Ég er verða bara frekar spennt fyrir þessu öllu saman eftir mikið af blendnum tilfinningum og hef fulla trú á þetta sé framfaraskref.
     
    Jæja sharing is not scaring...og nú hef ég deilt. Allir að plana heimsókn til London.
    December 21

    Eru hríðarverkir hjá konum sem vita að þær eru óléttar þá bara hugarástand? Mér finnast svona sögur alltaf jafn ótrúlegar en þetta eiga þær allar sammerkt, konurnar finna fyrir tíðaverkjum og út kemur barn .... ég ætti þá að vera vel undirbúin!
     
    Tekið af mbl.is
    Ágústa Kristófersdóttir, 43 ára kona búsett í Kópavogi, átti stúlkubarn inni á baðherbergi heima hjá sér í morgun án þess að vita að hún væri ófrísk. Hún fór í hjáveituaðgerð í sumar og missti um 30 kg í kjölfarið. Læknar hafa fylgst með henni frá því en engan grunaði þó að hún væri barnshafandi.
    Frá þessu var sagt í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Ágústa sagði í samtali við fréttamann að hún hafi átt barnið á salernisgólfinu. Hún hafi fundið fyrir tíðaverkjum en ekki grunað að hún væri með barni. Hún hafi því að vonum orðið hissa þegar stúlkan kom í heiminn. Báðum heilsast þeim vel.

    Læt svo fylgja hér að lokum 2 góðar meginreglur til að fyrirbyggja streitu.... 

    1) Ekki fá kast yfir litlu hlutunum....

    2) Allir hlutir eru litlir...

    December 18

    Þriðjudagur, miðvikudagur, fimmtudagur, föstudagur, laugardagur, jól.
     
    1,2,3,4,5 dagar til jóla.
     
    Kannski ég fari að kaupa allavega jólakortin, þá er líklegra að ég skrifi í þau. Og kannski að ég fari að kaupa allt hitt sem ég þarf...finnst nú alltaf skemmtilegra að gera þetta í rólegheitum, er alveg að fara að missa af því tækifæri. Langar  líka í hlaðborð með Lísu minni, ef hún er ekki horfin ofan í nótubók einhversstaðar.
     
    Ætla að lengja jólafríið mitt um einn dag á milli hátíðanna - Jibbý :-) Er svooo að fara að gera ekki neitt, sem er líka allt í lagi í ljósi þess að undanfarnar vikur hef ég troðið marvaðann til að halda mér á floti hérna í vinnunni.
    December 07

    Gömul Hjón Keyra á Skunk!!!!
    Eldri hjón voru á ferðalagi á húsbíl í Bandaríkjunum.
    Allt í einu skýst eitthvað út á veginn og lendir undir bílnum. Þau stoppa og athuga málið og sjá að það liggur skunkur á veginum. Virðist hann vera með lífsmarki svo þau ákveða að taka hann með og fara með hann til næsta dýralæknis. Þau taka skúnkinn og leggja á gólfið í bílnum og keyra af stað. "Skúnkurinn skelfur", segir konan, "ætli honum sé ekki bara kalt". "Settu hann þá á milli fótanna á þér", segir maðurinn. "...en lyktin?", segir konan.
    "Já, haltu bara fyrir nefið á honum."
    December 01

    Það er verið að ræna mig. Mæli eindregið með að allir fari vel yfir visayfirlitin sín. Yfir 100þús kall gjaldfærður á kortið mitt sem ég á ekki og enn streyma inn færslurnar. Samt er kortið í veskinu mínu. Miðað við tegund færslna er einhver í evrópukrúsi með hinum ýmsu flugfélögum að gista á fínum hótelum og borga fyrir það með "mínum" peningum. Vísa fær 7 stóra plúsa fyrir frábæra þjónustu í móðursýkiskastinu mínu yfir þessu, og að vera nánast búið að greiða allar færslurnar til baka inná kortið mitt.
     
    Í fleiri slæmum fréttum er það helst að eftir tvær agalegar svefnlausar nætur þar sem hnéð á mér getur bara ekki verið í sömu stöðu lengur en 10 mín (NY flugið heim síðustu helgi gerði alveg útslagið) fór ég til doksa áðan. Hann stakk yfir sjö cm langri nál, UNDIR hnéskelina á mér og INNÍ hnéð og get barasta sagt ykkur það að það sauð verulega á. Ég var ill þegar ég kom út. En þetta á vonandi að hjálpa mér á meðan þetta líður hjá í bili.
    LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
    Þegar ljónið er í góðu skapi raula allir með. En ef þú stendur þig að einhverri fýlu ættirðu kannski að halda þig heima þar til þú ert búinn að sleikja þig upp
    Þetta á ágætlega við, sendið mig bara afsíðis ef ég fer í einhverja fýlu og ég sleiki það best úr mér sjálf öfugt á við flesta. Átti vel við eftir læknamisnotkunina áðan og ránið þegar ég borgaði. En það er búið...komið og raulið með :-)
     
    Til hamingju með desember og góða helgi!
    November 28

    Hvar finn ég jólatónlist til að brenna? Í tilefni þess að það virðist nær ómögulegt að kommenta (haft verri áhrif á suma en aðra að hafa reynt) þá þigg ég msn eða tölvupóst með svari. Mig vantar líka síðustu þættina í LOST 2 ef einhver á fyrir mig á flakkarann. 
     
    Myndin lýsir ágætlega borðhaldi heimilisins þessar vikurnar. Ekki hika við að bjóða mér í mat ;-) Ég vil líka koma því á framfæri að mér finnst það algjörlega off að klukkan sé að verða fimm, langt þangað til ég kemst heim úr vinnunni, og það er kolniða SVARTA myrkur úti. En miðað við hvað tíminn líður óhugnanlega hratt verður komið vor með betri tíð og blómum í haga áður en ég næ að hnerra næst eða gera nokkuð af því sem ég ætla að ljúka fyrir vorið. Annars er framundan að læra fyrir enskupróf, laaangt síðan ég hef þurft að læra fyrri próf - held samt að ég hafi sjaldan lært jafn mikið eins og á þeim tíma síðan ég hætti að þurfa að lesa fyrir próf. Niðurstaða - ennþá jafn löt að koma mér í lestur, er alveg að detta í á síðustu stundu. Á einhver TOEFL tutorialinn áður en ég eyði ennþá fleiri dollurum en ég eyddi um helgina?
     
     
    Kossar. H 
    November 20

    Myndir

    Setti inn nýtt albúm...búin að vera róleg tíð síðustu helgar með fjölskyldu og vinum, bara frekar nice verður að viðurkennast eftir óhemju útstáelsi undanfarna mánuði....mikið ofboðslega langaði mig samt að lengja helgina í morgun frekar en fara út og berja bílinn minn út úr snjóskafl.
     
    35 dagar til jóla. Aldrei þessu vant hlakka ég bara til aðventunnar, ætla að taka þessu öllu með ró og njóta þessarar birtu af snjónum.
     
    Af öðru, þá er ég búin að lista upp jákvæða hluti við aðskilnað. Það er svo gott að finna að maður sakni, samt skrýtið ef maður byrjar að sakna fyrirfram. Og það er svo frábært að hlakka til að fá góða aftur heim...ég ELSKA að hlakka til. Svo skaðar engan að vera aðeins einn.
     
    Að lokum, ég er orðin massaköggull. Gætið ykkar.
    November 10

    Ljúfi föstudagur

     
    Ég grét úr hlátri, er eiginlega bara ennþá að vola. Family Guy svíkur engan. Ha' en god weekend!
    November 07

    Óbærilegur léttleiki tilverunnar

    Komumst heim frá Amsterdam. Græddum aukadag, hversu slæmt er að vera veðurtepptur í útlöndum? Við vorum s.s. ein af þúsund sem vorum föst, okkar töf var rúmur sólarhringur. Það vill til að fylgdarsveinninn er hinn ágætis félagsskapur, og í ágætum félagsskap eru flugvellir ekkert svo hræðilegir.
     
    Annars var þetta mjög klassískt og bara æðislegt, vorum alvöru túristar. Kaupa, skoða, borða fullt og vera góð við hvort annað. Myndalbúm sem lýsir þessu ágætlega. Það voru síðan keyptar þrjár yfirhafnir, kíló af osti og kíló af súkkulaði. Ég segi bara eins gott að við framlengdum Bootcamp til áramóta og vonandi verður Lísa dugleg að koma í heimsókn þar sem ég borða takmarkað af súkkulaði .... og ekki viljum við að einhverjir fari að rúlla um ; )
     
    Niðurstaða sú, að ef einhverjum leiðist í Amsterdam, þá hlýtur sá að vera leiðinlegur. Borgin er svo fjölbreytt og full af öllum útgáfum fólks og möguleikum til athafna að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hjá mér stendur upp úr hvað hún er einstaklega hlýleg og vinaleg.