Helga Sigurrós's profileHelga SigurrósPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    February 04

    Enn eitt ellimerkið hefur riðið yfir, og það allra sterkasta. Fyrir voru nokkur farin að gera vart við sig, "bros"hrukkur, hávaðaóþol, flókainniskórnir, Rás 2/Bylgjan..einhver fleiri en ekkert svo mörg. Það sem viðbættist er eiginlega alveg agalegt. Undafarnar 3 vikur hefur farið fram undankeppni í Evróvisjón á laugardagskvöldum..ég er semsagt alveg með á hreinu hvaða lög fara áfram, búin að hafa skoðun á því í hverjum þætti hverjir verða valdir og ofan á þetta allt saman með uppáhaldslag en mér finnst gleðin í lagi dr. Gunna flutt af Heiðu skemmtileg...svona happysong. Held með þeim. Tók ég það fram að þetta er á laugardagskvöldum?

    3 heilar vinnuvikur eftir. Hálfskrýtið. Mikla komin á markaðinn (sjá hér). Hálfskrýtið. Kisamín liggur svo hátt malandi á maganum á mér fyrir ofan tölvuna að ég heyri varla í sjónvarpinu. Skrýtnast.
    February 01

    Fyrst á röngunni...

    Mér finnst algjörlega óþolandi að það séu til einstaklingar í þessum heimi sem misnota börn. Unglingar eru líka börn. Og fullorðnir karlmenn sem sækjast eftir að sofa hjá börnum og telja sér trú um að 13 ára stelpur séu kynverur sem girnast þá, það er vægast sagt ógeðslegt. Það er óþolandi að sem uppalandi þurfi að taka þriggja til fjögurra ára gamalt barn og fræða um kynhegðun svona löngu áður en það ætti að þurfa reka sig jafn harkalega á heiminn, þar sem raunveruleg hætta er til staðar á því að einhverjir ætli að vera "góður" við klofið á barninu og setja með því ör á sál þess það sem eftir lifir ævi. Ef/þegar ég eignast börn er aldrei að vita nema að ég fái eina að Breiðarfjarðaeyjunum hans afa og setjist að þar í einangrun og uppeldi. Skál fyrir Kompás að vekja foreldra til umhugsunar um netnotkun barna og örugglega eitthvað af fullorðnu fólki (líklegast mest karlmönnum) til umhugsunar um hvar mörk í netsamskiptum liggja.
     
    Jæja, þá er ég búin að skvetta úr þessum. Að skemmtilegri hlutum. Hvernig er hægt að líka ekki við janúar? Ef maður sefur nógu lengi yfir sig er farið að birta þegar farið er á fætur og það er ennþá smá glæta þegar haldið er heim á kvöldin. Það er svo hressandi. Það sem er ekki jafn hresst er desember visareikningurinn, en það má vinna sig í gegnum hann - maður ræður ekkert við myrkrið.
     
    Í fréttum er það helst að kisamín hennar Lísu er í pössun hjá okkur. Færði okkur morgunmat í morgun - hlaðgólf af ormum - blessunin. En það er víst hugurinn sem skiptir máli. Eftir töluverðar vangaveltur í herbúðum Miklu hefur verið tekin sú ákvörðun að setja hana á sölu. Já það hreyfir sig hratt núna, en London er næsta árið og aðrar húsnæðispælingar í gangi að því loknu svo þetta er besta niðurstaðan. Sérlega í ljósi þess að þessi höfuðstóll lána gerir fátt annað en hækka á þessum síðustu og verstu. Eigum við eitthvað að ræða hvað það pirrar mig? Mikla hefur verið partur af mörgum hæðum og lægðum síðustu árin í mínu lífi og risasaga í henni, en það er líka ljóst að hún passar ekki með næstu skrefum. Frábær íbúð samt ... sem ég er svo tilbúin að kveðja :)
    January 24

    Ég eeelska harðsperrur. Harðsperrur eru mælikvarði á góða æfingu. Sérstaklega harðsperrur í rassinum, er með nóg af þeim í dag. Fór s.s. aftur á æfingu í gær eftir "jóla"pásu og hlunkaðist um. Ætla að vera dugleg í vikunni. Það er bara 5 mín labb í líkamsræktina í hverfinu okkar í London. Note to self: Ekki taka aðra "jóla"pásu í kringum flutningana.
     
    Gladdist asnalega yfir því að sambýlismaðurinn væri með magaverk í gær. Það þýðir að magaverkurinn minn undanfarna daga hefur verið smitandi óþverri, ekki kaffióþol eins og ég var farin að óttast. Bauð kaffi því aftur velkomið í líf mitt í morgun. Ég er illa innrætt.
    Cyanide and Happiness, a daily webcomic
    January 16

    Það er vægast sagt verið að drepa mig lifandi. Annar dagurinn i röð fram eftir kvöldi á fundum um algórythma og módel...með nokkrum innskotum um hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið hefur áhrif (þar kem ég inn). Fjandinn, hef ekki séð svona jöfnu glærur síðan í stærðfræði hjá Steingrími í THÍ og það var það agalegasta.
     
    Versta lykt sem ég veit er samblönduð andfýla af kaffi og tóbaki.
     
    Eitt stykki íbúð fundin í London. Eitt stykki Lín skólagjaldalán afgreitt, leið næstum yfir mig þegar ég sá framfærsluáætlunina - hvað halda þeir að ég sé? París var í einu sem öllu yndisleg. Hver veit nema að þetta verði búið fyrir myrkur á morgun og maður sjái eitthvað af Montpellier?
    January 09

    9.janúar

    Hún systir mín á afmæli í dag. Skrímslið eins og mér fannst hún einfaldlega vera fyrstu ævimánuði sína er víst orðin 22 ára, bara alveg að ná stóru systur, ekki nema 4 ár í það ;-) Þetta styttist óðum! Löngu hætt að vera skrímsli og er alveg yndisleg. Til hamingju með daginn snúllan mín
     
    PU fékk vetrardekk og 2008 miða áðan, án athugasemda sjáið til. Þvílíkur eðalkaggi, hann kemur til með að standa á bílasölu næsta daga. LÍN hætti að vera alveg jafnmiklir bjánar og mér hafa fundist þeir undanfarna daga eftir fund í hádeginu...vonandi verða þeir orðnir vinir mínir í kringum hádegi á morgun. Þannig að það er bara best að brosa við deginum sem systir mín varð 22 ára.
    January 08

    Boj ó boj. Visa heldur örugglega að það sé farið að stela af visa-kortinu mínu aftur (það sem þeir vita ekki er að ég er bara að refsa því fyrir þesssa óþægð um daginn). Útsalalala...gerði nokkuð, all nokkur, frekar mörg góð kaup um helgina.
     
    England og Frakkland næstu vikur. Held ég hætti að drekka nokkuð annað en cosmopolitan. Svo á ég morgunfíl, góðan og indælan og allt það, það er bara verst hvað ég er ókát ef ég vakna við morgunfíla. (virkar ginseng? einhver hér með það á hreinu, þar sem ég er morgunlík?)
    December 28

    Breytingar

    Gleðileg jól, nær, fjær og rafvinir. Þvílík leti sem hefur legið yfir Miklu, sumir þurftu að vísu að bregða sér í vinnu nokkra tíma á dag, þess á milli var flatmagað - þar sem ég er ekki þessir sumir hef ég eingöngu flatmagað (nema maginn ekki svo flatur ennþá) og sótt matarboð. Við erum komin með lítinn orkubolta af schnauzer kyni í vistun til okkar fram inn í nýja árið, og vííí hvað það er indælt að vera með hund á heimilinu aftur og fara í kvöldgöngur.
     
    Deginum í dag fylgja blendnar tilfinningar en ég var að tilkynna samstarfsfólki mínu að ég sé á leið í allavega ársleyfi. Hér hef ég unnið frá miðju námi þegar ég byrjaði sem fulltrúi og á þessu þrem á hálfa ári lært alveg heilan helling og þroskast ótrúlega faglega og starfa núna sem staðgengill forstöðumanns á stærsta sviði stofnunarinnar með "strákunum mínum". Mér finnst alltaf hálf kómískt þegar ég skoða þessa síðu. Það er því verið að klippa á ákveðinn naflastreng með þessu öllu saman og margir sem mér er einstaklega hlýtt til sem ég starfa með og þess vegna er ég hálf klökk barasta yfir þessu. Veimiltíta.
     
    En á móti kemur að það eru spennandi tímar fram undan. Ég hef fengið inngöngu í London School of Business and Finance þar sem ég ætla að glíma við Master in International Business, ég hef jafnframt hug að taka réttindapróf meðfram í fjármálum og stjórnun. Prógramið í kúrsum er samfellt í ár og svo er gefið ár í rannsóknarverkefni. Skólinn byrjar í mars svo LONDON BEIBÍ....ég er víst að flytja þangað. Við ætlum að vera formlega farin af landi í byrjun mars og förum út núna í byrjun ársins að leita okkur að húsnæði. Ég er verða bara frekar spennt fyrir þessu öllu saman eftir mikið af blendnum tilfinningum og hef fulla trú á þetta sé framfaraskref.
     
    Jæja sharing is not scaring...og nú hef ég deilt. Allir að plana heimsókn til London.
    December 21

    Eru hríðarverkir hjá konum sem vita að þær eru óléttar þá bara hugarástand? Mér finnast svona sögur alltaf jafn ótrúlegar en þetta eiga þær allar sammerkt, konurnar finna fyrir tíðaverkjum og út kemur barn .... ég ætti þá að vera vel undirbúin!
     
    Tekið af mbl.is
    Ágústa Kristófersdóttir, 43 ára kona búsett í Kópavogi, átti stúlkubarn inni á baðherbergi heima hjá sér í morgun án þess að vita að hún væri ófrísk. Hún fór í hjáveituaðgerð í sumar og missti um 30 kg í kjölfarið. Læknar hafa fylgst með henni frá því en engan grunaði þó að hún væri barnshafandi.
    Frá þessu var sagt í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Ágústa sagði í samtali við fréttamann að hún hafi átt barnið á salernisgólfinu. Hún hafi fundið fyrir tíðaverkjum en ekki grunað að hún væri með barni. Hún hafi því að vonum orðið hissa þegar stúlkan kom í heiminn. Báðum heilsast þeim vel.

    Læt svo fylgja hér að lokum 2 góðar meginreglur til að fyrirbyggja streitu.... 

    1) Ekki fá kast yfir litlu hlutunum....

    2) Allir hlutir eru litlir...

    December 18

    Þriðjudagur, miðvikudagur, fimmtudagur, föstudagur, laugardagur, jól.
     
    1,2,3,4,5 dagar til jóla.
     
    Kannski ég fari að kaupa allavega jólakortin, þá er líklegra að ég skrifi í þau. Og kannski að ég fari að kaupa allt hitt sem ég þarf...finnst nú alltaf skemmtilegra að gera þetta í rólegheitum, er alveg að fara að missa af því tækifæri. Langar  líka í hlaðborð með Lísu minni, ef hún er ekki horfin ofan í nótubók einhversstaðar.
     
    Ætla að lengja jólafríið mitt um einn dag á milli hátíðanna - Jibbý :-) Er svooo að fara að gera ekki neitt, sem er líka allt í lagi í ljósi þess að undanfarnar vikur hef ég troðið marvaðann til að halda mér á floti hérna í vinnunni.
    December 07

    Gömul Hjón Keyra á Skunk!!!!
    Eldri hjón voru á ferðalagi á húsbíl í Bandaríkjunum.
    Allt í einu skýst eitthvað út á veginn og lendir undir bílnum. Þau stoppa og athuga málið og sjá að það liggur skunkur á veginum. Virðist hann vera með lífsmarki svo þau ákveða að taka hann með og fara með hann til næsta dýralæknis. Þau taka skúnkinn og leggja á gólfið í bílnum og keyra af stað. "Skúnkurinn skelfur", segir konan, "ætli honum sé ekki bara kalt". "Settu hann þá á milli fótanna á þér", segir maðurinn. "...en lyktin?", segir konan.
    "Já, haltu bara fyrir nefið á honum."
    December 01

    Það er verið að ræna mig. Mæli eindregið með að allir fari vel yfir visayfirlitin sín. Yfir 100þús kall gjaldfærður á kortið mitt sem ég á ekki og enn streyma inn færslurnar. Samt er kortið í veskinu mínu. Miðað við tegund færslna er einhver í evrópukrúsi með hinum ýmsu flugfélögum að gista á fínum hótelum og borga fyrir það með "mínum" peningum. Vísa fær 7 stóra plúsa fyrir frábæra þjónustu í móðursýkiskastinu mínu yfir þessu, og að vera nánast búið að greiða allar færslurnar til baka inná kortið mitt.
     
    Í fleiri slæmum fréttum er það helst að eftir tvær agalegar svefnlausar nætur þar sem hnéð á mér getur bara ekki verið í sömu stöðu lengur en 10 mín (NY flugið heim síðustu helgi gerði alveg útslagið) fór ég til doksa áðan. Hann stakk yfir sjö cm langri nál, UNDIR hnéskelina á mér og INNÍ hnéð og get barasta sagt ykkur það að það sauð verulega á. Ég var ill þegar ég kom út. En þetta á vonandi að hjálpa mér á meðan þetta líður hjá í bili.
    LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
    Þegar ljónið er í góðu skapi raula allir með. En ef þú stendur þig að einhverri fýlu ættirðu kannski að halda þig heima þar til þú ert búinn að sleikja þig upp
    Þetta á ágætlega við, sendið mig bara afsíðis ef ég fer í einhverja fýlu og ég sleiki það best úr mér sjálf öfugt á við flesta. Átti vel við eftir læknamisnotkunina áðan og ránið þegar ég borgaði. En það er búið...komið og raulið með :-)
     
    Til hamingju með desember og góða helgi!
    November 28

    Hvar finn ég jólatónlist til að brenna? Í tilefni þess að það virðist nær ómögulegt að kommenta (haft verri áhrif á suma en aðra að hafa reynt) þá þigg ég msn eða tölvupóst með svari. Mig vantar líka síðustu þættina í LOST 2 ef einhver á fyrir mig á flakkarann. 
     
    Myndin lýsir ágætlega borðhaldi heimilisins þessar vikurnar. Ekki hika við að bjóða mér í mat ;-) Ég vil líka koma því á framfæri að mér finnst það algjörlega off að klukkan sé að verða fimm, langt þangað til ég kemst heim úr vinnunni, og það er kolniða SVARTA myrkur úti. En miðað við hvað tíminn líður óhugnanlega hratt verður komið vor með betri tíð og blómum í haga áður en ég næ að hnerra næst eða gera nokkuð af því sem ég ætla að ljúka fyrir vorið. Annars er framundan að læra fyrir enskupróf, laaangt síðan ég hef þurft að læra fyrri próf - held samt að ég hafi sjaldan lært jafn mikið eins og á þeim tíma síðan ég hætti að þurfa að lesa fyrir próf. Niðurstaða - ennþá jafn löt að koma mér í lestur, er alveg að detta í á síðustu stundu. Á einhver TOEFL tutorialinn áður en ég eyði ennþá fleiri dollurum en ég eyddi um helgina?
     
     
    Kossar. H 
    November 20

    Myndir

    Setti inn nýtt albúm...búin að vera róleg tíð síðustu helgar með fjölskyldu og vinum, bara frekar nice verður að viðurkennast eftir óhemju útstáelsi undanfarna mánuði....mikið ofboðslega langaði mig samt að lengja helgina í morgun frekar en fara út og berja bílinn minn út úr snjóskafl.
     
    35 dagar til jóla. Aldrei þessu vant hlakka ég bara til aðventunnar, ætla að taka þessu öllu með ró og njóta þessarar birtu af snjónum.
     
    Af öðru, þá er ég búin að lista upp jákvæða hluti við aðskilnað. Það er svo gott að finna að maður sakni, samt skrýtið ef maður byrjar að sakna fyrirfram. Og það er svo frábært að hlakka til að fá góða aftur heim...ég ELSKA að hlakka til. Svo skaðar engan að vera aðeins einn.
     
    Að lokum, ég er orðin massaköggull. Gætið ykkar.
    November 10

    Ljúfi föstudagur

     
    Ég grét úr hlátri, er eiginlega bara ennþá að vola. Family Guy svíkur engan. Ha' en god weekend!
    November 07

    Óbærilegur léttleiki tilverunnar

    Komumst heim frá Amsterdam. Græddum aukadag, hversu slæmt er að vera veðurtepptur í útlöndum? Við vorum s.s. ein af þúsund sem vorum föst, okkar töf var rúmur sólarhringur. Það vill til að fylgdarsveinninn er hinn ágætis félagsskapur, og í ágætum félagsskap eru flugvellir ekkert svo hræðilegir.
     
    Annars var þetta mjög klassískt og bara æðislegt, vorum alvöru túristar. Kaupa, skoða, borða fullt og vera góð við hvort annað. Myndalbúm sem lýsir þessu ágætlega. Það voru síðan keyptar þrjár yfirhafnir, kíló af osti og kíló af súkkulaði. Ég segi bara eins gott að við framlengdum Bootcamp til áramóta og vonandi verður Lísa dugleg að koma í heimsókn þar sem ég borða takmarkað af súkkulaði .... og ekki viljum við að einhverjir fari að rúlla um ; )
     
    Niðurstaða sú, að ef einhverjum leiðist í Amsterdam, þá hlýtur sá að vera leiðinlegur. Borgin er svo fjölbreytt og full af öllum útgáfum fólks og möguleikum til athafna að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hjá mér stendur upp úr hvað hún er einstaklega hlýleg og vinaleg.
     
     
     
     
    October 26

    Sorrí...

    ...en ég bara verð, í ljósi þess að brandaraþroski minn er á við fimm ára, og að ég á ekki eftir að hlægja að slíku seinna meir (en lofa lýtatæknina ; ) ) svo er nýr pistill frá mér á Tíkinni ... loksins kom ég mér í að skrifa.
     
    A man and his wife go to their honeymoon hotel for their 25th anniversary. As the couple reflected on that magical evening 25 years ago, the wife asked the husband, "When you first saw my naked body in front of you, what was going through your mind?"
    The husband replied, "All I wanted to do was to fuck your brains out, and suck your tits dry."
    Then, as the wife undressed, she asked, "What are you thinking now?"
    He replied, "It looks as if I did a pretty good job."
     
    October 19

    Undur veraldar.

    Þingvellir - í alfara leið og skottúr frá bænum.
     
    Átti alveg stórgóða stund þar í gærkveldi eftir vinnu. Tilgangurinn var haustlita ferð. Þar sem haustið er komið af öllum sínum þunga þá er farið að dimma snemma. Varð fljótlega ljóst að ekki yrði mikið skoðað af haustlitum þar sem seint var lagt af stað. Hefði betur sleppt svekkelsinu sem varði í smá stund yfir því þar sem ég held að það jafnist fátt á við sólsetur á Þingvöllum, göngu í rökkri og algerri stillu og toppurinn að stara upp í stjörnubjartan himininn upp með veggjum Almannagjár. Hótel Valhöll er opið allan ársinshring núna svo hægt að loka með kakói þar, jólahlaðborð ársins í ár verður tekið til alvarlegrar athugunar þar.
     
    Kom heim full af orku, rjóð í kinnum með hreint loft í lungum. Enn hrifnari af landinu mínu og ástfangin af tilverunni. Ferðin tók tvo hálfan tíma með góðum göngutúr, kostaði ca 1200 með kakói og bensíni og ég gleymi henni aldrei. Mæli með þessu.
     
    October 10

    All over

    Krúttlingur minn: Þessi eini fannst aftur, niðurstaðan sú að útlegð í sínhvoru lagi væri ekki svo æskileg - þó það sé stórkostlegt að hittast aftur. Í kjölfarið því bókuð sameiginleg vildar- og fríðindaferð til Hollands ;)
     
    Jebb, ég er að tapa mér í ferðalögunum. Guð minn almáttugur hvað þetta ár á eftir að skilja eftir sig mikið af hlutum sem hafa verið gerðir, góðum tilfinningum og bara hreyfingu á tilverunni. Í ljósi þess að ég virðist bara gera það sem mig langar til gagnvart erlendis, þá er ég orðin frek að því leitinu. Er alveg miður mín yfir að vera ekki að fara með Huldu og Lísu til London helgina áður en við förum til Amsterdam. Já gott fólk, ég ætti að fara í innhverfa íhugun eða hvað þetta allt er sem jones og krúttlingur blogga stöðugt um. En svona til að forðast allan misskilning, þá er ég verulega þakklát fyrir að hafa fengið öll þessi tækifæri og stolt af sjálfri mér að láta bara vaða og hafa gaman af þessu, ekki ónýtt heldur hvað ég er búin að fá kynnast störfum erlendis í gegnum vinnuna.
     
    Fátt títt:
    • Íbúðin mín upptekin, bý þ.a.l. í einu af lúxus húsum höfuðborgarsvæðisins...upplifi mig eins og þegar ég var lítil - þegar manni fannst vera pláss og hljóp um heima hjá sér
    • Hull var kosin bjánalegasta borg Bretlands - ég er ekki hissa
    • Tókst að byrja tala þýsku á 4 dögum - já neyðin kennir, þó maður sé ónakin (finnst í nýyrðabók Helgu). Kannski ég skelli mér til Frakklands og Spánar sínhvora vikuna og bæti 2 tungum enn á cv-ið ;)
    • Upplifði í fyrsta sinn á árinu að ég held óendanlegt pirringskast í gær, eftir að hafa þulið upp 9 hluti sem áttu þátt í að móta það á einum degi og gera mig einstaklega samskiptaleiðinlega ákvað ég að fara bara að kúra og sofa áður en ég bætti þeim 10. á listann. Og viti menn - Það kom fallegur þriðjudagur. Einu sinni á ári er samt nóg.
     
    Ég er ekki frá því að það sé örlítill persónulegur tónn í þessari færslu...er mér að fara aftur...aftur. Vil svo benda á alveg frábært nýtt blogg hennar Evu Wonder sem linkur er kominn á. Kommentin gætu verið úr bestu þáttum Fastra liða eins og venjulega, ef einhver man eftir því ágæta sjónvarpsefni. Svo er stelpan líka að koma skemmtilega á óvart sem snilldarpenni.
     
     
    September 30

    Erlendis

    Komin út...enn og aftur. Ákvað að bæta aðeins framan á vinnuferð til Þýsklands og stoppa í nágrenni London fyrst ég þyrfti hvort sem er að fljúga hér í gegn - langar að skoða London með öðru hugarfari en vanalega, en það vantar bara eitthvað í London ef Lísa er ekki með mér.
     
    Klósettpæling:
    Ég er svo löngu búin að átta mig á því að klósettumgengni karla og kvenna byggist bara ekki upp á sömu grundvallar prinsippum. Þessu verður bara ekki stjórnað, bara eins og X og Y held ég. Þar sem þessu verður ekki breytt þá ákvað ég einhvern tíma að láta þetta afskiptalaust, ef klóstið pirraði mig opið, þá er eitt handtak að loka því. Ef klóstið pirrar karlpeninginn lokað, þá er eitt handtak að opna það aftur. Ég ætla ekki að leggja mat á hvort er réttara, bara eins og pjalla og typpi, hvorugt er réttara. Við erum bara ólík. Eeeen til að komast til Englands, þurfti ég í flugvél. Í flugvélinni þurfti ég að pissa sem ég reyni samt að forðast eins og mögulegt í flugvélum þar sem það er eitthvað afskaplega óaðlandi við flugvélaklósett (ég skil ekki fólk sem grobbar sig af milehigh..ég fæ hroll) Þar sem ég var búin að fresta athöfninni eins og mögulegt, þurfti svo að standa í röð þegar lét til skarar skríða var ég alveg í spreng þegar klóstið var loksins laust, girti niður í flýti og hlammaði mér niður. Á kalt helvítis stálið þar sem hinn litningurinn á undan mér hafði skilið setuna eftir uppi (alla setuna) og ái og ojj, það eru ekki ýkjur en ég orgaði. Hallast að því að lokað sé rétt, það fer ekki milli mála þegar klóstið er lokað.
     
    Hef það annars fínt. Búin að versla fínt í matinn á svo fínni prís en heima, von á AJ stelpunum í kvöldið. Búin að labba í búðir, fara í handsnyrtingu í mildu og fínu veðri. Sit með hvítvín, að vinna skýrslu, live at the plaboy mansion í bakgrunninum (maður er alltaf að reyna að læra) og lífið bara ljúft. Væri ljúfast ef einn væri hér enn. England er ágætt.